Pin It

althingiMMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á meðal almennings á tímabilinu 31. janúar til 6 febrúar. Framsóknarflokkurinn bætir við sig nokkru fylgi í kjölfar niðurstaða EFTA dómstólsins í Icesave málinu. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 19,5% að þau myndu kjósa Framsóknarflokkinn ef gengið yrðið til kosninga í dag, borið saman við 14,8% á tímabilinu 15-20 janúar 2013. Björt framtíð hefur bætt verulega við sig fylgi á árinu 2013. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 17,8% að þau myndu kjósa Bjarta framtíð nú, borið saman við 11,5 í desember 2012.

Fylgi Samfylkingar og Vinstri grænna hefur dregist nokkuð saman á árinu 2013. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögust 16,2% kjósa Samfylkinguna nú, borið saman við 17,4% í desember 2012 og 8,6% sögðu að þau myndi kjósa Vinstri græn nú, borið saman við 11,2% í desember 2012.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi allra flokka en fylgi flokksins hefur þó dregist saman á árinu. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 33% að þau myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn nú borið saman við 37,4% í desember 2012.

Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 0,9% að þau myndu kjósa dögun ef gengið yrði til kosninga í dag, 1,8% hægri græna, 0,7% Samstöðu og 1,4% sögðu að þau myndu kjósa aðra flokka ef gengið væri til kosninga í dag.

 1302 stjornmal 01

1302 stjornmal 03Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 76,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (9,1%), myndu skila auðu (6,4%), myndu ekki kjósa (2,3%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,4%). 


Tæpur þriðjungur styður við ríkisstjórnina

Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 30,1,% sem er hækkun frá síðustu mælingu (15-20 janúar 2013) er 27,8% sögðust styðja ríkisstjórnina .

1302 stjornmal 02

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 83,5% afstöðu til spurningarinnar. 

 

 Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 874 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára
Dagsetning framkvæmdar: 31. janúar til 6. febrúar 2013

Niðurstöðurnar á PDF:
pdf1302_tilkynning_stjornmal.pdf

Notkun heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er getið.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.

 

Þróun milli mælinga:

Ekki var spurt um traust til Landsdóms í fyrri mælingum.

Almennt um birtar niðurstöður kannana MMR
MMR birtir reglulega niðurstöður úr könnunum sem unnar hafa verið meðal almennings um málefni líðandi stundar. Kannanirnar eru jafnan unnar sem hluti af spurningavagni MMR og efnistök valin af starfsfólki MMR út frá þeim fréttum sem eru áberandi í umfjöllun þegar viðkomandi könnunin hefst. MMR birtir ekki fréttatilkynningar úr könnunum sem eru unnar fyrir aðra eða fjármagnaðar af öðrum.
 
Notkun á efni heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er skýrt getið í heimildum um uppruna gagnanna.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.
MMR er skrásett vörumerki Markaðs og miðlarannsókna ehf.
Þú ert hérHeim Fréttir Birtar niðurstöður Framsóknarflokkurinn bætir við sig fylgi í kjölfar niðurstaða í Icesave málinu
Markaðs og miðlarannsóknir ehf
Ármúla 32
108 Reykjavík
Sími/Tel: +354 578 5600