| Tæp 40% hafa hugsað um að flytja úr landi |
|
| Fimmtudagur, 17. nóvember 2011 15:01 | |||
|
Breytilegt milli hópa hvort fólk hafi hugsað um að flytja til útlanda Samkvæmt könnuninni var nokkur munur milli hópa, á því, hvort fólk hefði hugsað um að flytja ti útlanda á síðastliðnum mánuðum. Af þeim sem tóku afstöðu voru fleiri á höfuðborgarsvæðinu sem höfðu hugsað um að flytja úr landi en á landsbyggðinni eða 41,7% höfuðborgarbúa borið saman við 36,9% þeirra sem bjuggu á landsbyggðinni. Fleiri karlar en konur höfðu hugsað um að flytja til útlanda eða 46,2% karla borið saman við 33,5% kvenna. Þeim fækkar með hækkandi aldri sem höfðu hugsað um að flytja á síðastliðnum mánuðum. Þannig sögðust 23,3% elsta aldurshópsins hafa hugsað um að flytja til útlanda borið saman við 56,6% yngsta aldurshópsins. Ef litið var til stjórnmálaskoðana þá höfðu fleiri af stuðningsfólki Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hugsað um að flytja úr landi en stuðningsfólk Samfylkingar og Vinstri grænna. Þannig sögðust 41,0% Sjálfstæðismanna að þeir hefðu hugsað um að flytja af landi brott á síðastliðnum mánuðum borið saman við 33,4% Framsóknarfólks og 28,2% Samfylkingarfólks. Stuðningsfólk Vinstri grænna hafði síst hugsað um að flytja úr landi eða 24,5%.
Niðurstöðurnar í heild:
|